jólin eru ađ koma...:-)
Blogg blogg blogg
jæja verður maður ekki að reyna að halda þessu bloggi uppi….
var að vinna í 14 tíma í um daginn.. veii það var gaman(not). Það mætti halda að eg væri vinnualki. Var svo líka að vinna alla helgina þannig að það er bara eindalaus vinna VINNA VINNA. Hannes er líka á fullu í skólanum og lærir á fullu enda eru prófin byrjuð hjá honum.
Það var rosa gaman í Danmörku, setti myndir inn hérnar við hliðin á. Reyndar skítakuldi sko, ég hélt að ég væri að fara til útlanda!! blaa. En við létum það ekki á okkur fá og löbbuðum strikið fram og aftur eins og okkur væri borgaði fyrir það. Keypti mér einar buxur og eina peysu...búið.
Hittum bræður Hannesar Jolly og Villa og gistum hjá Vidda eina nótt.
Heimferðin var reyndar svoltið bras. Gátum ekki lent á Akureyraflugvelli vegna veðurs þannig að við lentum á Egilsstöðum og tókum svo rútu til Akureyrar. Komum heim um 4 um nóttina og svo tók ég flug suður klukkan 8 til að fara í vinnuna.
Kíktum á snáðann hennar Sunnu áður en við forum út, hann var rosa sætur algjört krútt.
Það eru allir að flytja núna finnst mér….
Vildís til hamingju með íbúðina!;)
Elfa er að flytja í Kóparvoginn...miss you Elfa. Eg er orðin svo vön að hafa hana fyrir neðan mig og geta bara stokkið niður þegar manni hentar.
Ég Elfa og Þúður fórum á kaffihús í vikunni, það var svo gaman að hittast og spalla, þurfum að endurtaka þetta einhverntíman aftur...bara sem fyrst.
Unnur vinkona er svo líka flutt í borgina þannig að mér ætti ekki að leiðast.
En þetta er nóg í bili
Hlakka svo til að koma norður um jólin, það verður svo gott að koma heim og hitta alla. Anna Karen miss you.
**love**
seinnt blogga sumir en blogga ţó...
jæja ég er nú aldeilis góður bloggari, einn og hálfur mánuður síðan ég bloggaði síðast haha.
Ég og Hannes erum komin inn á stúdendagarðana í Eggerstgötu. Það rosalega fínt. Íbúð á fimmtu hæð
þannig að við höfuð gott útsýni yfir hallgrímskirkjukirkju, perluna og friðarsúluna. Þetta er orðið ótrúlega
kósý hérna hjá okkur. Keyptum okkur sófa í ikea og sjónvarpsskenk í rúmfó. Set inn myndir af íbúðinni
flótlega. Ég er allavena ótrúlega ánægð með þetta:)
Sunna vinkona er orðin mamma. Óska henni innilega til hamingju með það. Hún eignaðist lítinn engil
síðastliðinn sunnudag. Get ekki beðið með að fara norður og sjá litla snáðann.
Við Hannes erum að fara til Danmerkur næstu helgi með vinnuna hans Hannesar að heimsækja bræður
hans sem búa út. Hannes tengdapabbi og Gunna tengdamamma koma líka þannig að þetta verður bara
fjölskyldurferð. Hlakka geggjað til þetta verður geðveikt.
love
Kók í bauk!!!!
Erum búin að koma okkur þokkalega vel fyrir bara....þetta er voða kósý sko.
Vinnan er fín, stutt frá.
Erum búin að vera að reyna að vera dugleg að elda, töfrum fram hvern réttin af öðrum, hver öðrum girnilegri:)
Er búin að redda mér korti í ræktina, nú á að taka sig á;) Við Hannes förum alltaf saman eftir vinnu...það er fínt.
Er með stengi,.. eða hassberrur eins og þeir kalla það hér víst. skilur einginn þegar maður talar um strengi.
Er aðeins byrjuð að keyra og rata, allavega það helsta, þannig að maður er ekki alveg jafn ósjálfbjarga og maður var fyrstu vikuna.
Mér líður stundum eins og ég sé komin til einhverns annars lands þegar ég er í Reykjavík.... t.d þegar þegar maður biður um pylsu(pulsu eins og þeir segja) fær maður kartöflu- sallat og einhvern annan viðbjóð á pylsuna, og svo þarf maður að setja sósuna á sjálfur!!!!!!:-o daaaa asnó
Passa mig á því að tala eins og sannur Akureyringur og reyni að gera í því að tala eins hart og ég get.....kók í bauk;) Ætla sko ekki að fara að tala eins og reykvíkingur...glædan
En allavega nóg infós í bili..bið að heilsa ykkur öllum....later alligator
hilsen úr reygjavig.....
Borg óttans á morgun...here i come
Síðasti dagurinn í vinnunni í gær. Fór í lyf og heilsu teiti í gærkveldi þar sem við snæddum okkur á nokkrun pillum. Aðalrétturinn var parataps og koffínátín í eftirrétt...mmm nami nammm. ............djók í brók;D
Ég er að fara að flytja suður á morgun, er svo spennt, svo spennt. Hlakkar svo til,....að fara að búa með honum Hannesi mínum:*
Er á fullu núna að pakka og ákveða hvað ég eigi að taka með mér. Annars er nú ekki mikið pláss fyrir mikið af drasli enda er þetta bara bílskúr sem við búum í þannig að ekkert sérstaklega mikið pláss en ég held að það verði bara kósý, eða allavega ætla ég að gera það kósý.
Erum enn að bíða eftir að komast inn á stúdentagarðana, vona að það verði um áramót en verður líklega aðeins seinna.
Ég verð að vinna í Lyf og heilsu í Austuveri sem er bara rétt hjá því þar sem ég bý þannig að ég get bara labbað í vinnuna...............HAHA nei djók þanna plataði ég ykkur,, ég að labba hehe nei mér myndi sko ekki detta svoleiðis vitleisa í hug.....craZy hahha...
En later........
Love
Og nú eigiđ ţiđ ađ svara;) :*
Hola beibis ætla að prufa að skella inn svona könnun eða spurningalista um mig og athuga hvað þið vitið mikið um mig hehe. Endilega svara ef þið nennið til að gleðja mitt litla hjarta
... plíízz![]()
1)Hvað heiti ég?
2)Hvar kynntumst við fyrst?
3)Hvað er miðnafnið mitt?
4)Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
5)Hversu vel þekkiru mig?
6)Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
7)Hvað er ég gömul?
8)Afmælisdagur?
9)Hárlitur (náttúrulegur)?
10)Augnlitur?
11)Á ég systkini?
12)Hefuru nokkru sinni öfundað mig?
13)Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
14)Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?
15)Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
16)Hver er minn besti eiginleiki?
17)Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn?
1 Er ég fyndin/nn?
19)Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum?
20)Hef ég einhverja sérstaka hæfileika?
21)Spila ég á eitthvað hljóðfæri?
22)Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað mundi það þá vera?
23)Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni?
24)Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?
25)Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
26)Ef þú gætir gert eða sagt eitthvað sérstakt við mig núna, hvað mundi það vera?
hasta la vista
kominn tími til ađ fara úr hreiđrinu....
hæ hó loksins blogg….
Búið að vera frekar mikið að gera upp á síðkastið....vinna og fleira, en samt búnar að vera alveg dásamlegar síðastliðnar vikur. Er búin að hafa það bara nokkuð gott. Skellti mér í bústað þar síðustu helgi með famelíunni. Geggjað veður, sól og hiti. Bara búin að vera að liggja í sólbaði og í heitapottinum og étaéta namm namm:D Þetta er gott líf sem maður lifir.
Eldaði mína fyrstu máltíð um daginn og alveg sjálf sko frá grunni hehe. Geggjað stolt og mamma hjálpaði mér ekki neitt....alveg satt. Eldaði nú reyndar bara pastarétt sko en þetta var samt flókin eldamennska í mínum augum en það hafðist nú samt. Bauð honum Hannesi mínum í mat og hann er meira að segja ennþá lifandi þannig að þetta hefur ekkert verið neitt eitur sko.
En já það er kannski kominn tími til að maður byrji að fara að læra eitthvað að elda þar sem maður er nú að fara að flytja að heiman af hótel mömmu í haust. Er að fara að flytja suður og vinna, og taka mér ár í frí frá skólanum úff.
Hlakka geggjað til en er samt alveg nett stressuð að fara frá mömmu grenj og þurfa að keyra í Reykjavík, þori því svo ekki. Nei þetta bjargast. Á nú samt eftir að sakna hennar Önnu minnar askoti mikið. meira grenj.
Fór á djammið um helgina með Önnu, Hófý og Unni Birnu..mjög gaman. Takk fyrir helgina stelpurJ
Var að koma af fótboltaleik KA-Þór. Ég held að KA hafi unnið, ekki alveg viss samt;)
Hún Þrúða mín á afmæli í dag...til hamingju með afmælið elskan mín:) knús:*
Ætla að enda þetta á mynd af Sesari kisanum mínum, fallegasta ketti í heimi. Ég á eftir að sakna hans svo mikið í vetur. Hann er með pínu blá augu:)
kvitterí kvitt;)
jćja mín orđin 21 árs
Átti sem sagt afmæli síðasta miðvikudag 20. júní. Fékk að sofa út og mætti svo bara í vinnuna um hádegi. Já ég á sko besta yfirmann í heimi...gaf mér bara frí af því að ég átti afmæli...alveg frábært:)
Hann Hannes minn bauð mér út að borða á afmælisdaginn, hann er svo sætur í sér:) En annars var afmælisdagurinn bara rólegur og ég hafði það bara rosa gott heima:)
Það var sko algjör letidagur í dag. Er í frí þessa helgi þannig að ég lá bara upp í rúmi og horfi á Iceprinsess haha já alveg mögnuð mynd hehe.
En ætla út með Unni Birnu á smá trjútt...hef ekki hitt hana í ár og öld...miss you Unnur:)
Later......og muna að kvitta til að gleðja mitt litla hjarta:)
Kominn tími á blogg
Jæja held að það sé kominn tími á nýtt blogg.
Búið að vera svo geggjað veður núna síðustu daga. Það er einmitt ókosturinn við að vera að vinna alltaf inni, að maður hreinlega missir bara af sumrinu. Hefði ekkert að móti því að fá að vera úti að vinna, alla vega þegar það er sól, og vinna að taninu;)
Fékk mér demant í tönnina um daginn, geggjað flott sko. Glitrar alltaf þegar maður brosir úújé. En hann datt úr í dag... dem. Samt ágætis ending þannig, toldi í 12 daga.
Mamma var samt ánægt þegar demanturin datt, henni fannst þetta ljótt. Þegar ég spurði hana hvað henni fyndist og brosti sætt þá sagði hún bara "er þetta nokkuð fast?"
Fjóla stóra systir var að útskrifast úr Háskólanum sem hjúkrunarfræðingur um helgina þannig að það var veisla á lau og mikið gaman og mikið étið:). Spurnig hvort ég eigi einhverntíman eftir að standa í hennar sporum og útskrifast sem hjúkrunarfræðingur...maður er svona að skoða þetta og spá og spegúlega.
Annars vill yfirmaðurinn minn sem ég er að vinna hjá í Lyf og heilsu endilaga að ég fari í lækninn. hmm veit ekki alveg hvort að ég sé nógu gáfuð til þess að læra það hehe, plús hvað þetta er langt nám maður úff.
Er búin að vera að passa hundinn hennar Fjólu sys síðustu tvær vikur því hún var í Tælandi. Svaf alltaf með hann inni hjá mér og köttinn líka hehe. Mér finnst svo kósí að sofa með svona gæludýr hjá sér, en reyndar var hundurinn bara á gólfinu. Mörgum finnst það svo ógeðslegt að sofa með dýr hjá sér...way?! skil það ekki, ég elska að hafa kött til að knúsa:)
En jæja hef ekkert meira að segja núna, þetta verðu bara stutt blogg... bæ í bili er að fara að horfa á fótboltaleik.. haha já þið heyrðuð rétt...ég á fótboltaleik! En það verður bara gaman, ætlum að fara með teppi og hafa það bara kósí ég og Annan:)
Ætla að enda þetta á mynd af Fjólu og ömmu minni síðan á útskriftardaginn. Finnst ykkur þær ekki flottar í þjóðbúningunum….svo fallegar!:)

...og muna svo að kvitta beibíz;)
komin heim í sveitina:)
Jæja þá er ég komin heim í sveitina. Fór til Reykjavíkur með Hófý og Elfu um helgina. Þurfti að testa djammið fyrir sunnan því að ég er svo saklaus sveitastelpa að ég hef eiginlega aldrei djammað í reykjavík. En það var heldur betur bætt út því um helgina hehe. Svo Kíktum við auðvitað aðeins í búðir og fórum út að borða og svona skemmtilegheit.
Upphaflega planið var reyndar að fara suður með Önnu Karen á Deep dish en Anna komst ekki vegna anna;) hehe. Hún er vinnandi manneskja.
Þetta var svo frábær helgi... svo gaman að fá að sjá hana Elfu mína þar sem maður er farin að sjá heldur minni af henni núna því hún er víst orðin stór stelpa og flutt að heiman til reykjavíkur.
Fórum út á föstudaginn og laugardaginn og vorum vel skrautlega þá hehe. komum svo heim og hrúguðum okkur bara allar í rúmið hennar Elfu og kúrðum saman. Furða hvað ég svaf samt vel miðað við þrengsin hehe. En það er líka eitthvað sem ég hef aldrei átt erfitt með, svefn. það þarf mikið að ganga á til að ég geti ekki sofið hehe.
Ætlaði nú að hitta hana Ástrósu mína en við fórum eitthvað á mis enda svoltið mikið fólk í bænum.
Eins gaman og það var að fara suður og djamma og svona þá verð ég nú að segja mér finnst miklu betra að vera hérna á Akureyri. Heima er best:)
Skil heldur ekki hvernig fólk ratar og getur keyrt í reykjavík. Vá ég er svo áttavillt að ég veit ekkert hvernig ég sný né hvað er upp og niður. Þetta er svo ruglingslegt! Elfa lét mig nú samt keyra aðeins þegar það var engin umferð en hannars lét ég stelpurnar bara um það að keyra. Shit ég á aldrei eftir að þora að keyra ein.
Byrjaði svo að vinna í morgun. Verð að vinna í Lyf og heilsu í Hrísalundi í sumar, það er bara fínt.
Ætla að taka mér ár í frí frá skóla. Er komin með svo mikinn skólaleiða að ég er að deyja. ætla að fá mér vinnu á einhverri stofnun til dæmis á Hlíð eða eitthvað. Hef náttúrulega aldrei unnið í heilbrigðisgeiranum þannig að ég ætla að vinna í vetur og afla mér svolítillar reynslu. Svo held ég bara áfram í 2. bekk:)
já gaman af því, þetta er nóg í bili .....ætla að fara í brynju með Önnunni...:)
....og muna svo að kvitta elskurnar;*
Hata pöddur!!
Það hefur svo sem ekki mikið drifið á daga mína þar sem ég er varla búin að fara út úr húsi í viku.
Fór reyndar í gær á rúntinn með Önnu Karen. Var alveg að rotna hérna inni þannig að það var mjög gott að komast aðeins út þótt það væri ekki nema bara rólegheit og bíltúr.
Veiddi risastórustu randaflugu sem ég hef á æfi minni séð inn á baði um daginn. Ég var svo huguð að ég veiddi hana bara með krukku og blaði og sleppti henni svo út í lífið aftur. Helvítið á henni settist reyndar á tannburstann minn. Ég keypti mér nýjan.
Fór í sturtu í sakleysi mínu um daginn þegar ég var búin að vera dágóða stund undir bununni að ég uppgötvaði að ég var ekki einsömul....
....þessi líka feita könguló hékk á vef beint fyrir framan andlitið á mér. Ég náttla öskraði eins og bavíanni og hentist út úr sturtunni butt naked hehe.
Já soddan perrar þessar köngulær. Skrýða inn í sturtuna hjá manni og glápa á mann. hehe. Nei ég held reyndar að hún hafi verið meira hrædd við mig heldur en hitt.
Ég drap hana og henti henni ofan í klósettið.
....Já ég veit ég er hræðileg manneskja.
Ég hata pöddur! Það er alla vega það góða við veturinn að þá eru engar pöddur.
En jæja ætla að halda áfram að læra...Anatomy bíður.....later




